Leikskólinn Tröllaborg fékk höfðinglega gjöf frá Lionsklúbbnum Höfða á Hofsósi.

Í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá því að leikskólahúsnæðið á Hólum var tekið í notkun gaf Lionsklúbburinn Höfði leikskólanum 200.000 kr. að gjöf sem skiptist milli deildanna á Hólum og Hofsósi. Ýmislegt var verslað eins og sést á meðfylgjandi myndum. Börn og starfsfólk þakka Lionsklúbbnum kærlega fyrir þessa frábæru gjöf.


Svæði

Leikskólinn Tröllaborg  |  Sími: Hólar 453 5760/Hofsós 453 7333  |  Netfang: trollaborg@skagafjordur.is