ÍBÚAFUNDIR í október
vegna endurskoðunar menntastefnu Skagafjarðar
Hafin er vinna við endurskoðun menntastefnu Skagafjarðar frá 2020. Verkefnið er fólgið í því að greina framgang á gildandi stefnu og móta nýja á grunni þeirrar eldri, skýra framtíðarsýn og aðgerðir til innleiðingar stefnunnar með viðmiðum um gæði mennta- og uppeldisstarfs.
Rík áhersla er lögð á samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa og aðra íbúa sveitarfélagsins við endurskoðunina.
Opið ferli og samtal við samfélagið er mikilvægt svo vel takist til við mótun stefnu og innleiðingu enda er slíkt grundvöllur þess að sem mest sátt ríki um stefnuna.
Nú býður stýrihópurinn öllum sem áhuga hafa að mæta á íbúafundi um endurskoðun stefnunnar þar sem íbúum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum.
📣 Íbúafundir um menntastefnu Skagafjarðar verða sem hér segir:
📍Í Grunnskólanum Hofsósi 📅þriðjudaginn 28. október 2025 🕔kl. 17:00
📍Í Varmahlíðarskóla 📅þriðjudaginn 28. október 2025 🕔kl. 20:00
📍Í Árskóla 📅miðvikudaginn 29. október 2025 🕔kl. 17:00 |
Dagskrá fundanna
- Kynning á ferlinu og fyrirlestur - Gerð og mikilvægi menntastefnu sveitarfélaga - Gunnþór frá Ásgarði skólaráðgjöf.
- Hópavinna - styrkleikar, veikleikar, ógnanir, tækifæri ofl.
- Samantekt, spurningar og næstu skref.
- Fundir standa ekki lengur en 2 klukkustundir!
Með von um góða þátttöku!
Stýrihópur um endurskoðun menntastefnu Skagafjarðar